Færsluflokkur: Bloggar

Kannski verður afsláttur aftur

í stað þess að lækka verð þá slá olíufurstar sig til riddara og auglýsa að þeir hafi ákveðið að gefa okkur afslátt í einn dag.....verðið var í enda april 86$ tunnan og núna er það 68$ og þessir menn auglýsa og auglýsa að þeir séu að gera okkur greiða að gefa okkur afslátt í einn dag.

LÆKKIÐ BARA VERÐIÐ eins og þið eigið að gara og gerið það strax.


mbl.is Hráolíuverð lækkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á einum mánuði hefur verð á crude oil lækkað um 20$

og þá er okkur boðinn afsláttur...... hvaða ### rugl er þetta
ef ég reikna 212 sem verðið var þegar crude oil var 86$ og núna er verðið 70$ þá ætti líterinn að vera á 172 krónur..... lækkið bara verðið og verið ekkert að rugla með afslætti eins og þið séuð að gera okkur greiða..
mbl.is Ódýrara bensín í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki bara málið að vín er ekki nauðsynjavara

Í kreppu þá verður allt annað en matur og kannski fatnaður nauðsynjavara.
Eldsneyti, vín, og fleira er orðið munaðarvara, þegar vara er kominn í þann flokk þá neitar fólk sér um þá hluti. Ég er t.d. búinn að minnka vinkaup örugglega um ca 80% og stefni að því að minnka eldsneytiseyðslu um 60%.
Ég er ekki að kaupa smygl eða brugga. Ég hætti bara að kaupa vöruna, það er nú ekki flóknara en það og allir tapa.


mbl.is Hátt áfengisverð stuðlar að smygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvað er í gangi??????????

crudoil lækkaði um 3 dollara í byrjun apríl og gengið lækkaði um 2 krónur og ekki lækkaði eldsneyti um aur hér á landi, verð er ennþá 2$ ódýrara en um síðustu mánaðamót og gengið er það sama og í apríl byrjun og þá hækka þeir................... þessu liði er ekki viðbjargandi og ÞAÐ BER AÐ TAKA AF ÞESSU LIÐI heimild til að selja eldsneyti. Það er engin samkeppni og eitt verð hjá öllum í olíumafíunni.... ÞAÐ BER AÐ STÖÐVA ÞETTA.

 

 

hér er hægt að sjá eldsneytisverð

http://oil-price.net/dashboard.php?lang=en


mbl.is Eldsneytið hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

gæti ekki verið

að þeir sem eru að hætta við séu að hætta við vegna þess að það er gos á Íslandi núna ????? .... og því óvíst hvort og hvenær flugumferð raskast aftur og fólk vill ekki taka séns á því.
mbl.is Dýrkeypt yfirlýsing forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hélt að helstu rök fyrir verðtrygginu

væru þau að lífeyrissjóðirnir krefjast þess. Samt tapa þeir pening..... kannski er verðtryggingin farin að bíta þá í rassinn því ekki eru launin verðtryggð og þegar verðtryggingin ríkur upp eins og núna hefur gerst þá getur fólk ekki staðið undir þeirri skuldahækkun... eða kannski voru þeir að lána útrásavíkingum veðlaus lán???

Kannski var þetta þannig að lífeyrissjóðirnir dældu pening inn í bankana og svo voru gullkálfanir þar eins og Kaupþings Kristján Arason sem voru að braska með þessa peninga og borguðu sér fleiri milljónir í laun á mánuði og úpsss tapaði því, en eins og hann sagði .."það var voða leiðinlegt en ég er samt skuldlaus" .... (rosalega er ég fegin að hann er skuldlaus eftir að hafa braskað með hundruð milljóna)

Svo almenningur sem fær lánaða smáaura til að kaupa bíl eða íbúð þá þarf að tryggja það í bak og fyrir og það er ekki nóg að útborgunin sé það áhættufé sem kaupandi leggur undir (eins og er annarstaðar í heiminum) heldur þarf lántaki að ábyrgast verðtryggingu og gengisfall, þannig að t.d. þegar Kristján Aranson og co tapa þá þurfa þeir ekki að borga fyrir tapið. Lánin okkar eru bara hækkuð og lífeyriragreiðslur eru minnkaðar...snilldar þjóðfélag.....og það sem meira er það hefur EKKERT breyst eftir hrun.

Græðgi er alsráðandi.

t.d. Vodafone. Símreikningur hjá þeim sem var 1900 krónur var komin upp í 14.000 tveim mánuðum eftir gjalddaga. Þetta er Ísland í dag.
Ég var að borga þessu fyrirtæki tugi þúsunda fyrir net og síma á hverjum mánuði og ég sagði öllu upp. Versla aldrei við þá aftur. Svo þegar ég æsti mig þá sagði gjaldkerinn að mér væri nær að skulda 1900 krónur og henni fannst það ekkert undarlegt að 1900 kallnn var orðin að 14.000.
(rúmlega 700% hækkun) mér finnst eðlileg að ef það dregst að borga reikning þá greiðir maður eðlilega okurvexti 10% + 9% verðtrygginu.

Núna er mottóið hjá mér að ef fyrirtæki notar Intrum eða álíka blóðsugu milliliði þá versla ég ekki við þá.
Vegna þess að þeir sem ætla ekki að borga þeir borga ekki og þeim er alveg skítsama en þeir sem eru að rembast við að borga alla sína reikninga það er verið að níðast á þeim.


mbl.is Lífeyrisgreiðslur lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

nú er heimsmarkaðsverð buið að lækka um 2 $ frá því í fyrradag

verðið var 87.40 en er nu 85.45 Ekki hefur mikið farið fyrir þessari verðlækkun.

Svo er annað að það er þetta trix hjá olíufjélögunum að hræra í verðinu upp og niður verðið var 201-204 fyrir nokkrum dögum  núna segja þeir að þeir vilji ekki hækka verðið ur 207.???....... Þannig að trixið er að hækka um 4 krónur lækka um 2 hækka um 5 og lækka um eina  1 þannig að þá er komin 6 krónu hækkun en samt voru þeir að lækka verðið og segja öllum það.  Og allir eru komnir upp í  207 lámarksverð  sumir eins og OLÍS eru með bensínið á 212.

Hættum bara að aka og þá fara þessir fégráðugu olíufurstar á hausinn. Ég ætla að minnka mína keyrslu um 60% á þessu ári.


mbl.is Sviptingar í bensíninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er aðeins eitt hægt að gera og það er að minnka akstur

Markmið mitt þetta árið er að minnka akstur að lámarki um 60%.

Öll ferðalög í sumar verða á suðurlandi og hámark 100 km fjarlægð frá heimili. Bíllinn verður ekkert notaður um helgar o.g.frv. með þessu ætti að nást 60% minnkun.

Ef þorri landsmanna myndi gera þetta þá verða þeir af 60% af tekjum sínum og þá verður kannski samkeppni.  

Svo er verið að vesenast með betri vegi og vegtolla. Núna hefur verð hækka á einu ári frá 147 í 212  þannig að eftir ár þá verður verðið komið í  300-350 kr lítrinn, þá verður enginn á ferð og því þarf ekkert að laga vegi eða reisa vegtollahlið.   

 


mbl.is Eldsneyti hækkar um 3-4 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

he he hver verslar eiginlega við OLÍS.... útrásavíkingar???

Keyri daglega framhjá nýju OKURstöðinni við Norðlingabraut á leiðinni á Selfoss og þeir eru alltaf með dýrasta eldsneytið. Þannig að hver verslar þar eiginlega? Það er búið að dæma þessi félög fyrir að vera með verðsamráð og hvað stöðvar þá í að hækka verðið í 300 eða 500 eða ??? EKKERT Það gengur ekki að einkarekin fyrirtæki geti orkað á eldsneyti. Þú getur ekki sleppt því að kaupa eldsneyti því byggð er svo dreifð og þetta bitnar mest á þeim sem búa fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Ég mæli með að eldsneytis söluleyfi allra olíufélagana verði afturkallað og ríkið sjái um sölu eða setji þak á eldsneytisverðið. Ef þak væri sett á söluverð þá yrðu olíufélögin að gæta aðhalds í rekstri eins og allir íslendingar, þeir gætu lokað fjölda stöðva út um allt land og sparað ansi mikinn pening sem hægt er að nota til að lækka eldsneytisverðið. Enda til hvers að hafa t.d. 4 mismunandi bensínstöðvar í smá bæjarfélagi og það muna 1 krónu á verðinu ef það nær því. Það er lönguljóst að það er engin samkeppni í gangi. þeir eru búnir að skipta markaðinum og svo er trixið að hræra aðeins í verðinu til að rugla fólk og hækka svo um 4-6 krónur og lækka aldrei um meira en 3 krónur.
mbl.is Olís hækkar eldsneytisverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi

2.2.2010 var verðið komið uppi 77$

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2010/02/02/oliuverd_haekkar/

núna 3 dögum síðan og engum fréttum síðan um lækkun, er verðið komið í 73

5$ lækkun.... það er greinilega engin frétt

svo hækkar það um 27 sent... og það er frétt..... 

greinilegt að hækkun er bara frétt


mbl.is Lítilsháttar hækkun á olíuverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dóri J

Höfundur

Halldór Jónasson
Halldór Jónasson
Þetta er mín skoðun. Þú hefur líklega aðra skoðun og ég virði það.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Útreikningur
  • Útreikningur
  • Útreikn
  • Línurit
  • linurit 783390.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband