Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Er ekki crude oil búið að lækka í þessum mán úr 93$ í 87.56$...

Þetta virðist þýða hækkun hjá N1.

Maður hefur verið að hugsa um að fjárfesta í metanbúnaði því ég er að aka lámark 150km á dag þannig að kostnaður er orðin óbærilegur eða um 68.000 á mánuði.(7litrar/100)*150*217*30

En málið er að það eru olíufélög sem eru að selja Metan og teystum við því að það verði ódýrara í framtíðinni... Nei
og t.d. af hverju kostar Metan 114kr er það vegna þess að þeir setja sér að verð á Metan eigi að vera helmini ódýrara en Bensín?

En af hverju á Metan að fylgja Bensínverði. Núna er verið að henda eða s.s. brenna 90% af Metanframleiðslu.
Í Evrópu er Metan yfirleitt þrefalt ódýrara en Bensín.

Ef menn myndu verðleggja Metan útfrá kostnaðarverði + hófleg álagnin þá væri verð líklega allt annað og ef ríkið myndi ekki rjúka af stað og leggja ofurskatt á Metan þá myndu allir skipta yfir í Metan.
Sem myndi skila sér stax sem minni mengun , minna keypt inn af Bensíni og Olíu.

En ég teysti nú ríksistjórninni ekki til að fara þessa leið þannig að líklega þarf maður bara að hætta að keyra bíl og fá sér hest og hestakerru.


mbl.is Eldsneytisverðið aldrei verið hærra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hefði gerst eg gengið hefði styrkst?

og að gengis vísitalan myndi verða eins og fyrir 3-4 árum þegar lánið var tekið (sem er sama staða og afnám gengistryggingar), myndu þá bankarnir fara á hausinn?
Þá myndu lánin fara í það sem þau voru þegar þau voru tekin + vextir.

Nei bankarnir myndu þá ekki fara á hausinn því að með styrkingu krónunar þá myndi skuldinn í erlendir mynt minnka í íslenskum krónum.

Þannig að ef gengistrygging er tekin af og bankin er látin taka það á sig þá er það hagur bankans að krónan styrkist og þá myndu bankar vinna í því að styrkja krónuna í stað þess að veikja hana eins og þeir gerðu áður.

Gengið á eftir að jafna sig á næstu árum og krónan á eftir að styrkjast en aðeins ef bankarnir hafa áhuga á því, núna er áhuginn enginn.

Þannig að með því að afnema gengistryggingu og og láta bankana taka skellinn þá hefur bankinn tækin til að vinna í því að styrkja krónuna, og með styrkingu á krónunni þá lækka lán hjá öllum hvort sem þeir eru með gengis eða verðtrygð lán. Ef almeningur fær skellinn á gengis og verðtygðum lánum (s.s. á bankahruninu og því að krónan er verðlaus) þá hefur bankinn alls engan áhuga á að gengið styrkist því þá lækkar skuldakrafan á íslensk heimili og fyrirtæki.

Fjármálaráðherra hefur gífulegar áhyggjur á því að bankar ráða ekki við þetta högg en hann virðist ekki gera sér neina grein fyrir því að almenningur getur ekki greitt upp flipp bankana og það stefnir í það 40% þjóðarinnar verði gjaldþrota.


mbl.is AGS hefur áhyggjur af bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyndinn frétt

Þegar verð erlendis hækkar um 1$ þá kemur frétt um að "Mikil verðhækkun" hafi orðið og verð á eldsneyti er hækkað um 3-6 krónur á Íslandi. En þegar verð lækkar um 10$ eins og gerist núna þá er sagt...... "Eldsneyti lækkar í verði". en engin lýsingarorð og svo lækka verð aðeins um 3 krónur....

Fyrirsögnin ætti að vera "Gífulegt lækkun á heimsmarkaðsverði" og verðið ætti að fara undir 200kall á Íslandi
mbl.is Eldsneyti lækkar í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnað að nú er verð á Crude oil komið í $75.1 úr $86 og verð hefur

ekki lækkað um aur hér á landi og enginn fréttamiðill hefur minnst á að verð hafi lækkað um 10$ erlendis .... þeir ætla líklega að þegja þetta yfir helgina þannig að þeir þurfi ekki að lækka fyrr en á mánudag.

sjá verð á crudoil hér
http://www.oil-price.net/


Þetta væri ekkert mál ef laun væru þau sömu hér og þar

þá væri 276,4 ódýrt.  T.d. eru laun í Noregi og Danmörku ca 100% hærri en hér á Íslandi. 

Þannig að allur rekstrakostnaður ætti að vera 100% ódýrari á Íslandi og einnig hýtur verð að miðast við kaupgetu fólks.
En græðgin er svo mikil hjá Olíufélögum að þeir vilja hafa sama útsöluverð og erlendis en borga helmingi minna í rekstrakostnað afgangurinn fer beint í vasa fégráðugra.

Ég held að nýja Ísland sé helmingi fégráðugra en það var áður.

 


mbl.is Eldsneytisverð með því lægsta sem gerist í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér finnst nú merkilegast við þessa frétt að 34 miljónir eru

núna 117 miljónir. Og það merkilegasta er að engin virðist kippa sér neitt upp við það..... eins og það sé alveg ósköp eðlilegt.

Eina sem er sagt að honum var nær að taka erlent lán.

 


mbl.is 117 milljóna skuld - 296 þúsunda tekjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt að það er bara frétt ef verð hækkar

því frá því 17 nóv lækkaði verð úr um 81$ niður undir 71$ ........ 10$ lækkun.

Verð á bensínstöðvum á íslandi hefur ekki lækkað um krónu þrátt fyrir að gengið hafi staðið í stað á þeim tíma.

Merkilegt..

Hér er hægt að sá verðið http://www.oil-price.net/ 


mbl.is Olíuverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að því væri komið i gegn

að það væri leyfilegt að breyta bílum þannig að þeir geti notað annað eldsneyti. það eru allir að tala um minna kolvetnis bla bla og eina lausnin sé að hækka verð til að það lagist, en er ekki lausnin að breyta ökutækjum þannig að þau mengi minna og noti minna jarðeldsneyti. 

Þá minnka innkaup á eldsneyti sem mikill gjaldeyrir fer í , gróðurhúsaáhrif minnka og fólk hefur þá kannski efni á að keyra bílinn sinn.
Því það er enginn að fara að kaupa rafmagnsbíl eða nýjan príus eins og kolefnaskattur er sagður vera að hvetja fólk til að gera.
Fólk situr uppi með yfirveðsetta bíldrusluna sem það er með á lánum og annað hvort hefur fólk efni á að aka bílnum eða ekki.
Það er kannski stefna ríkisins að aðeins auðmenn og ráðherrar geti ekið um götur borgarinnar.

Svo finnst frábært þegar fólk er að fagna því að álögur á eldsneyti eru að hækka, hugsa að yfirleitt séu það nú samt þeir sem búa í 101 eða af einhverum ástæðum aka ekki bíl, en við búum úti á landi og þurfum oft að fara langan veg til vinnu eða náms þá munar okkur ansi mikið um þessar hækkanir.

 

 


mbl.is Bensínið kostar 60.000 meira
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þeir hljóta að geta fengið greiðslu aðlögun

eins og við hin. Það á sama yfir alla ganga og því á ekki að afskrifa eina krónu af þessum glæpamönnum.

'i leiðinn þá langar mig að segja frá þeirri frábæru greiðsluaðlögun sem þeir sem eru með bílalán geta fengið. Ég hringdi í bílalánafyrirtæki og fékk þessa útskýringu.

 S.s. það er hægt að færa greiðslu niður í það sem það var fyrir einu ári. og til að það náist þá er hægt að lengja lán allt að 3 árum.

Eftir 3 ár getur lántakandi ANNAÐ HVORT SKILAÐ BÍLNUM (það hlýtur þá að vera þannig að lántakandi fær ekki krónu fyrir bílinn) EÐA GREITT ÞAÐ SEM UPPÁ VANTAR. Þannig að það verður ekki afskrifuð ein króna á almenning.

Þetta er hin frábæra greiðslu aðlögun.
Almenningur þarf að fara að fatta það að við þurfum að borga hverja einustu krónu til baka en sökudólgar munu sleppa og glotta af okkur aumingjunum sem þurfa að borga allt þeirra sukk.

 


mbl.is Skulda milljarð út á jarðakaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er eiginlega í vatninu hjá þessum alþingismönnum

Þeir virðast allir verða veruleikafirrti um leið og þeir komast á þing. Borgararflokkurinn málpípa pottaglamrara er horfinn og er líklega í einhverju kokteilboði , vinstri grænir sem virkuðu ferskir og staðfastir eru ekkert nema ..... ja ég veit ekki hvað og samfylkingin er steinþögnuð.

Það er ekkert gert. Einu lausnirnar fyrir almenning er að lengja í hengingarólinni. Í staðin fyrir að borga lánið á 10 árum þá er verið að hlekkja fólk til æviloka í skulda fen. Fólk sem keypti sér kannski smá bíl eins og Kia eða eitthvað þessháttar og skuldaði áður 2 miljónir skuldar núna 4-5 miljónir í þessari bíldruslu og meirihluti launa fara í að greiða okur vexti og verðtryggingu. Því ef bíllinn er tekinn þá skuldar þú samt 4-5 miljónir. (bíllinn varð allt í einu verðlaus eftir ástandsskoðun) 

Allir eru að bíða eftir kraftaverkinu því stolt íslendina er þannig að enginn gefst upp fyrr en í fulla hnefanna (ja nema útrásavíkingar sem keppast um að láta fyrirtækin rúlla á hausinn því þeir eru búnir að færar allar eigur hingað og þangað).  En það eina sem almenningur fær eru hækkanir hækkanir hækkanir...og jú lækkanir á launum...þ.e.a.s þeir sem hafa vinnu.

Maður hefur það á tilfinningunni að þeir sem stjórna hafi enga hugmynd hvað þeir eru að gera.
Sagt var að númer eitt væri að koma bönkunum upp. nú eru þeir komnir upp og enginn fær lán því flest öll veð eru ónýt og þeir sem hafa veð dettur ekki til hugar að fá lán á 25% vöxtum. Þannig að núna eru bankarnir fullir að peningum sem enginn vill eða getur fengið.

svo var það ESB, allt átti að lagast við að sækja um það... ekkert gerðist.

þá er það Icesave.....það er endavitleysa sem mun verða velt fram og tilbaka.

Það er enginn sem getur komið með lausn um það hvað eigi að gera. Enginn með áætlun sem væri skipt niður á næstu ár og okkur væri sagt á mannamáli hvað þarf að gerast til að koma okkur uppúr þessu. Ekkert. Velrekið fyrirtæki sem lendir í vandræðum það gerir plan og segir starfsfólki í smáatriðum hvað gera eigi.
Þau fyrirtæki sem ætla að leysa vandann með því að segja ekkert, leggja nýjar álögu á t.d.  matarmiðana, setja bílastæðisgjald á starfsmenn, klósett gjald o.s.frv.  Það fyrirtæki fer á hausinn því starfsfólkið segir upp og fer annað.

Mér sýnist framtíðin íslands vera þannig að hér verði ekki búandi og núna þegar maður er að lifa sín bestu ár, þá ætla ég ekki að eyða þeim í að greiða okur vexti og skuldir útrásavíkinga sem note bena lifa eins og kóngar ennþá þrátt fyrir að hafa velt yfir á almenning hundruðum miljarða skuldum. Reyndar missti röndótti ræninginn úr Landasbankanum sumarbústaðinn sinn við SKORRADAL.  Þeir hlæja allir af okkur.

Steingrímur ef þú ætlar að hækka skatta á okkur sýndu okkur þá hverju það skilar. sýndu okkur línurit eða eitthvað sem sýnir hvað er að gerast og hverju það mun skila.  
Segðu okkur hve miklu bensínhækkunin hefur skilað í kassann.
Því það væri fróðlegt að fá að vita það, því það var einhver nefndin sem var sett saman til að finna út hvernig hægt væri að draga úr eldneytis eyðslu og þeir fundu það út að eina leiðin væri að hækka verð á eldsneyti.  Þannig að það fer ekki alveg saman að auka tekjur og minnka neyslu.


mbl.is Miklar skattahækkanir í farvatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Dóri J

Höfundur

Halldór Jónasson
Halldór Jónasson
Þetta er mín skoðun. Þú hefur líklega aðra skoðun og ég virði það.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Útreikningur
  • Útreikningur
  • Útreikn
  • Línurit
  • linurit 783390.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband