Ætli samstarfið sé sprungið ??

Ég gat ekki heyrt annað, í þættinum "Í beinni hjá Loga", að minnsta kosti hafði Sigmundur ekki mikla trú á að Samfylking og Vinstrigrænir gætur gert neitt, nema að þeir "Framsókn" legðu þeim línurnar.  Undarlegt að þeir hafi gefið þá yfirlýsingu að þeir myndu styðja þá, en svo kemur í ljós að þeir hafa enga trú á samstarfi Samfylkingar og Vinstrigrænna.

Held að samfylking og Vinstri Grænir ættu að leita sér að öðrum flokki til að bakka sig upp, því með framsókn geta þeir átt von á að samstarfið springi á fyrstu hraðahindrun.  Svo er líka spurning hvort sjálfstæðismenn séu búnir að melda sig við framsókn og framsókn sé bara að vinna í því að sprengja samkomulagið.

Allavega maður hélt að með því að VG kæmi að stjórn myndir eitthvað gáfulegt fara að gerast en enn og aftur eru framsókn sem heldur hinum í gíslingu, svo eiga framsóknarmenn örugglega eftir að heimta slatta af ráðherrastólum. 
Það er bara vonandi að engin kjósi framsókn í næstu kosningu, því þó að þeir væru með eitt prósent fylgi þá myndu þeir heimta nokkra ráðherrastóla. 


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dóri J

Höfundur

Halldór Jónasson
Halldór Jónasson
Þetta er mín skoðun. Þú hefur líklega aðra skoðun og ég virði það.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Útreikningur
  • Útreikningur
  • Útreikn
  • Línurit
  • linurit 783390.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband