Enda til hvers að hanga hér

Allar eigir og innistæður verðlausar.

18% vextir  + verðbætur sem er að drepa öll fyrirtæki og almenning.

Magnað tæki sem seðlabankinn notar til að ná niður verðbólgunni. Og svínvirkar líka svona.
Því ef enginn býr á íslandi þá er engin verðbólga.....

Eins að lækna krabbamein með því að skjóta sjúklinginn í hausinn, reyndar drepst sjúklingurinn en krabbameinið er horfið.

Svo bætist ofan á allt óhæfir stjórnmálamenn sem bera enga ábyrgð og eru bara að ná sem mestu út fyrir sig og sína. Fégráðugir bankamenn, bankaeigendur og verðbréfa gamblarar sem eru búinir að skuldsetja allan almenning uppfyrir haus.

Svo eignum við að vera að taka til eftir þessa vitleysingja.

Kæmi mér ekki á óvart að  ca 20% Íslendinga flyti á brott innan árs (og þá er ég bjartsýnn).

 

 

 

 


mbl.is Ásókn í störf í útlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki bara alveg ágætt að fá evru og ganga í Evrópusambandið

Skil ekki alveg þegar fólk segir að ekki megi ganga í  Evrópusambandið því þá munum við missa auðlindir okkar. ........Do.... við erum búnin að missa auðlindir okkar. Það eru nokkrir greifa sem eiga nær allan fisk sem veiddur er.  Það eru allskonar vinir og kunningar spiltra stjórnmálamann sem eru búinir að þurausa allar auðlindir Íslands og ekki nóg með það heldu skuldsetja okkur uppfyrir haus um langa framtíð.
Þannig að ég hef ekkert fundið fyrir því að hér séu einhverja auðlindir sem almúginn græðir á.

Ísland er eins og flott einbýlishúsi, auðvitað er leiðinlegt að missa það en  það er marg veðsett á verðtryggðum lánum þannig að eignin er enginn, en segja svo að vegna þess að húsið sé svo flott þá má engin útlendingur komast í að eiga það eða leigja það. 
Þessir álfar eru búnir að tapa Íslandi í gambli og þeir sem áttu að hafa eftirlit með fjárglæframönnunum sem voru með tugi miljóna í laun á mánuði gerðu ekkert því það var aldrei tímabært.   

Ef gengið er í  Evrópusambandið þá verður mun erfiðara fyrir þessa þingmenn og klíkuhópa að hirða af okkur allt. Þá yrði allt í fastari skorðum. Þá yrði mun betra fyrir okkur almenning að búa hér.  Það væri engin verðtrygging og okurvextir.
Þingmenn gætu ekki breitt lögum sér og sínum vinum í vil til að hirða eignir okkar. Þeir væru þá loksins að vinna fyrir okkur en ekki að reyna að hirða allt af okkur.

Þá væru ekki 18% vextir til að halda krónuræfli á floti og vertrygging. Hvaðan haldið þið að þessir 18% vextir komi sem á að greiða erlendum fjárfestum fyrir að fjárfesta í krónunni? Nú úr vasa okkar. Höfum við efni á því að borga fjárfestum 18% arð að peninginum sínum. Nei.

Það á að lækka vexti strax og hefja uppbygginu á íslandi. Með 18% vöxtum þrífst ekkert atvinnulíf.
hvað þá ef einhverjir bjartsýnis manninu dettur í hug að stofna fyrirtæki sem gæti aflað gjaldeyris fyrir þjóðfélagið.
Það gengur ekki. Þannig að ef haldið er áfram með 18% vexti og verðtrygginuna þá verður ekkert eftir hér á Íslandi eftir 2-3 ár nema nokkrir þingmenn og vinar þeirra. 
Afhverju ættum við að láta bjóða okkur að þeir hirði af okkur aleiguna, rukki okkur svo fyrir gamblið og leggi svo á okkur 18% vexti og verðbætur.
Það er ekkert mál að flytja og finna sér eitthvað annað að gera og þúsundir eiga eftir að gera það næstu mánuði ef ekki verður neitt gert. 

Við þurfum að byggja upp Ísland. Og það hefst ekki með því að drekkja okkur í vöxtum og verðbætum og svo þegar allir eru á barmi gjaldþrots þá koma ráðamenn og gefa afslátt á hinu og þessu. Það er eins og að berja mann í klessu með kylfu og rétta honum svo plástur.. 

Annars ættu ASI að beita sér fyrir því að öll laun íslendinga verði verðtryggð. Fyrst þeir eru svona hrifnir að verðtrygginu.  þ'á skiptir engu hve mikið allt hækkar því launin elta þá verðlagið og þá getum við borgað af lánunum okkar. Sömu rök og þeir nota um verðtrygginu á lánum. Þett verður nátturulega að ná í báðar áttir 

Ef evra væri hér þá væri stöðugleiki og lágir vextir. sem er númer eitt fyrir fyrirtæki og þarf að leiðandi fyrir almenning og þegar fyrirtæki og almenningur blómstrar þá blómstrar allt í kring.

 


mbl.is Líflegur ASÍ-fundur í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mæli með í næsta pakka

Það er líklega augljóst að hækkun á vöxtum uppí 18% eða meir dregur ekki að erlent fjármagn  til landsins enda búið að rústa ímynd Íslands erlendis og þó svo að eitthvað fjármagn kæmi þá er engin verðmæta aukning fyrir almennig s.s. verðmætaaukningin er eingöngu hjá þeim sem legga pening inn á reikning. 18% vextir sem ríkið ætlar að borga fjárfestum kemur beint úr okkar vasa.  Á móti drepur hár vaxtakostnaður fyrirtæki og almennig og verður til þess að fólk fer að flytja af landi brott og er þegar byrjað á því, þannig að þetta er vítahringur.

Við þurfum að hugsa þessa stefnu algerlega uppá nýtt

Það sem við þurfum á Íslandi eru fyrirtæki sem framleiða vörur fyrir erlendan markað.

Ef t.d. vextir yrðu lækkaðir og rekstraskylirði bætt  þá ætti að gefast tækifæri fyrir íslendinga og útlendinga til að fara að fullframleiða allskomar vörur, ekki bara flytja út hráefni.  

T.d. hefur engum dottið í hug að stofna rafhlöðu fyrirtæki. Flytja inn tómar rafhlöður og fylla þær með íslensu rafmagni og senda svo aftur út.
Setja upp fyrirtæki sem smíða bilahluti úr áli. Álið er hér, af hverju er enginn að framleið  neitt úr því.

eða stofna verksmiður sem búa til álpappír.

S.s. íslendingar þurfa að eiga  framleiðslufyrirtækin þannig að hagnaðurinn stoppi á Íslandi. 

Það eru til þusundir hugmynda.  það sem við þurfum er aðstoð stjórnvalda , eðlilega vexti og stöðugan gjaldmiðil.  

En að drepa alla með okurvöxtum og vaxtabótum og svo þegar allt er komið í kaldakol og öll fyrirtæki og almenningur að fara á hausinn að fara þá að fella niður hitt og þetta til að redda málum.

Mér finnst með ansi undarleg aðferð. 

 


mbl.is Ný greiðslujöfnunarvísitala tekin upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er peningurinn sem lagður var inn á reikning Icesave????

Af hverju eru ransókna fréttamenn ekki að elta það uppi eða ap minnsta kosti að varpa þeirri spurningu fram.

Ekki gufaði allur peningurinn upp, eða fór hann allur í að borga toppunum laun og bónust greiðslur ???? Ef peningurinn er þar þá á að taka lögtak í öllu þeirra drasli og kæra þá í leiðinni fyrir bankarán.


mbl.is Ísland stendur frammi fyrir gjaldþroti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En hvað ætli kostnaðaraukinn sé mikill á fjölgun árekstra

En auðvitað á að auka gjaldtöku á þeim sem nota nagladekk. Mæli með því að auka einnig gjladtöku á þeim sem nota ekki strætó. Ef allir myndu nota strætó þá myndi svifrik minnka all rosalega.  
mbl.is Vilja innheimta gjald vegna nagladekkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagræðing er númer eitt í kreppu. Loka 60% bensínstöðva og lækka verð

Það er nóg hafa eina stöð í hverjum bæ og tvær í Reykjavík og því væri hægt að loka 60%

Ríkið verður að yfirtaka eldsneytistöðvarnar ef þeir ætla að reyna að ná verðbólgunni niður, þetta lið sem stjórnar þeim er greinilega ekki treystandi fyrir þessu eins og komið hefur í ljós þegar þeir voru dæmdir fyrir verðsamráð. Olíufélögin geta rekið þessar sjoppur sínar áfram en ríkið á að yfirtaka eldsneytið.  

Hafa bara eitt ríkisfélag olíufélag, því það er enginn samkeppni 

Það getur nú ekki breytt miklu fyrir okkur. Innkaup eru sameiginleg hjá þeim, það er sama okur verðið allstaðar, engin samkeppni þar, sömu dælurnar, sama bensínið. ríkið gæti stórlækkað þennan verðbólgu þátt strax. Mæli með því að það fari af stað undirskriftarlisti þar sem fólk ákveður hvaða félagi á að loka og ef þeir loka þeim ekki og lækka verð þá verslum við ekki þar.

SAMSTAÐA er númer eitt, því þannig náum við að breyta þessu.  

 

   


mbl.is Eldsneyti hækkar hjá N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Valgerður ekki að frekar að axla ábyrð ?

Var það ekki hún sem seldi t.d. landsbankann og setti þeim engar reglur eða að minnstakosti ansi lausar reglur sem varð til þess að við fórum á hausinn. 

Svo segjast þeir þessir alþingismenn ekki hafa hugmynd um neitt. Það er alveg eins hægt að pikka upp hvaða mannsekju á götunni og hún hefði greinilega sömu þekkingu á þessu eins og ráðherrarnir.  Ef þú hefur ekki vit á því sem þú ert að gera þá áttu að hætta.  Því það er mjög greinilega að þeir sem hafa stjórnað hafa ekki hundsvit á því sem þeir voru að gera.   

Það er greinileg að það á að passa að ekkert leki til okkar. Spillingarliðið ætlar að halda í allt sukkið.

Og núna eru allir þeir sem komu okkur í skítinn að raða sér upp og bíða eftir að fá miljarða þegar uppbyggingin hefst.

 Engin  er ómissandi og síst þeir sem komu okkur í þessa vitleysu. En samt segja margir  "en hvað annað er betra?"
Það er eins og að vera í óhamingjusömu hjónabandi og hafa ekki þor í að slíta því, og  segja að þó svo að þú mynidr skilja við konuna þá væru allar hinar eins. Eru allar konur eins?  

Ég mæli með því að fleiri heiðvirtir alþingismenn leki upplýsingum til okkar.

Hvað var svona alvarlegt þó að þetta hefði farið til fjölmiðla? 
Greinilegt að sumir þurfa að fela eitthvað óhreint og greinilegt er að verið er að fórna góðum manni. Bjarni var rödd almennings í landinu.

Bjarni hefði átt að færa sig yfir í annan flokk.


mbl.is Bjarni segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki bara fínt að hafa gegnsæi í þessu.

Ef menn hafa ekkert að fela þá getur umræðan ekki komið sér illa, ef menn hafa eitthvað að fela þá er flott ef það kemur upp á yfirborðið og það fólk beri ábyrð á gjörðum sínum. Er ekki alltaf verið að tala um það þessa dagana að alþingismenn eigi að bera ábyrð á gjörum sínum. Það á bara að þakka Bjarna fyrir að koma þessu upp á yfirborðið.


mbl.is Bjarni íhugi stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri að lækka VEXTI STRAX fyrst þetta lán er ekki á leiðinni.

Var það ekki sagt að það væri skylirði frá fjárkúgurunum. Þannig að ef ekkert lán er veitt þá á að lækka vexti strax. (Ekki heldur seðlabankastjóri að almenningur sleppi sér í eyðslu ef það er gert).

Því þetta er spurning hvort  fyrirtæki og almenningur  lifi þetta af.  Það er allt farið til fjandans og óþarfi að ríghalda í einhver verðbólgumarkmið. 

Svo er bara að leita annað. Fyrst evrópa vill okkur ekki þá er bara að tala við Bandaríkinn. eða einhverja aðra, á ekki að fara að leita að olíu við ísland, kannki að tala við sádá og láta þá fá olíurétt í staðinn góða þóknun.  

 


mbl.is Fáum ekki lán nema Icesave deila leysist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski vegna þess að Range Rover og álika bílar eru ekki að seljast núna.

Var ekki verið  að setja einn Range Rover einn á dag þegar best var. 15milj x 6 = 90 miljónir á viku....

Plús allir hinir snobbbílarnir.....

 

 


mbl.is Mesti afgangur á vöruskiptum frá því mælingar hófust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dóri J

Höfundur

Halldór Jónasson
Halldór Jónasson
Þetta er mín skoðun. Þú hefur líklega aðra skoðun og ég virði það.
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Útreikningur
  • Útreikningur
  • Útreikn
  • Línurit
  • linurit 783390.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband