Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Núna hverfur fylgi VG og samfyklingar....... um að minnsta kosti 17%

1% lækkun er........... fáránleg.  Held að þarna hafi vg og samfylking sýnt að þau geta ekkert gert nema rífa kjaft.... ég ætlaði að kjósa VG í næstu kostningum.

Mánuður í kostningar og þá þetta... Þetta er búið..... síðasti naglinn í líkkistuna.  


mbl.is Stýrivextir lækkaðir í 17%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þannig að!!

Fjárglæframaður sem var með 16 miljónir í laun 2008 hækkaði úr 11 milj á 4 árum= 5 miljónir

Afgreiðslumaður  sem fékk 200.00 í laun 2008  hækkaði úr 166þús.   =  44þús

Það er alveg augljóst að þessi hækkun hjá afgreiðslumanninum er algert rugl og það þarf að lækka þau laun STRAX (ef það er ekki þegar búið að segja þessum starfsmanni upp nú þegar). Líklega hefur hann ofmetnast af þessari launahækkun og hefur stefnt þjóðfélaginu í hættu með því að kaupa sér sjónvarp á raðgreiðslu.

 


mbl.is Laun hækkuðu um 30% frá 2005-2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegir eru íslendingar

Allir íslendingar eru á móti því að borga skuldir fjárglæframann og að íslenskur almenningur sé í ábyrgð fyrir því rugli.
Svo þegar Forsetinn segir að það verði að skoðast að það sé ekki eðlilegt að erlendir sparifjáreigendur fá greitt upp í topp en bara íslendingar taki aleigunni.

Þá flippar íslenski bloggheimur yfir því að hann hafi látið þetta út úr sér. Var hann ekki bara að segja það sem okkur öllum finnst eða finnst okkur allt í lagi að láta taka okkur í ####? 

Það er verið að rukka okkur fyrir Icesave ruglið en bretarnir þeir ábyrgjast ekki enska banka fyrir utan bretland vegna þess að þeir hafa ekki fengið neina skatta af þeim. 

Hversvegna ættum við að borga og hversvegna á þá ekki íslenskur almenningur rétt á því að fá bætur uppí topp fyrir að tapa aleigunni?


mbl.is Viðtalið tekið úr samhengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrst að Davið hefur staðið sig svona vel.

Við hvað er hann þá hræddur ef hann stígur til hliðar. Ef hann er svona frábær og hefur gert allt til að koma í veg fyrir gjaldþrot Íslands þá verður hann örugglega endurráðinn.....

Rök Dabba eru  að hann hafi ekki gert neitt af sér,  en kannski gerði hann ekki neitt.

 

 


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætli samstarfið sé sprungið ??

Ég gat ekki heyrt annað, í þættinum "Í beinni hjá Loga", að minnsta kosti hafði Sigmundur ekki mikla trú á að Samfylking og Vinstrigrænir gætur gert neitt, nema að þeir "Framsókn" legðu þeim línurnar.  Undarlegt að þeir hafi gefið þá yfirlýsingu að þeir myndu styðja þá, en svo kemur í ljós að þeir hafa enga trú á samstarfi Samfylkingar og Vinstrigrænna.

Held að samfylking og Vinstri Grænir ættu að leita sér að öðrum flokki til að bakka sig upp, því með framsókn geta þeir átt von á að samstarfið springi á fyrstu hraðahindrun.  Svo er líka spurning hvort sjálfstæðismenn séu búnir að melda sig við framsókn og framsókn sé bara að vinna í því að sprengja samkomulagið.

Allavega maður hélt að með því að VG kæmi að stjórn myndir eitthvað gáfulegt fara að gerast en enn og aftur eru framsókn sem heldur hinum í gíslingu, svo eiga framsóknarmenn örugglega eftir að heimta slatta af ráðherrastólum. 
Það er bara vonandi að engin kjósi framsókn í næstu kosningu, því þó að þeir væru með eitt prósent fylgi þá myndu þeir heimta nokkra ráðherrastóla. 


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ATH verðþróun á Bensíns á Íslandi

Jæja er ekki komin tími til að virkja mótmælendur í að láta olíufursta íslands lækka eldsneytisverð.

Ég fór aðeins að skoða þróun og sé að álagnin hefur aukist gríðarlega.   

Ég fékk uuplýsingar á vefsíðu skeljungs , gengið er frá Glitni, og verða á crude oil er frá http://www.eia.doe.gov/

Til þess að nálga línurnar þá deili ég verðið á crude oil með 55. Eins og sjá má eru línurnar þokkalega samstæðar til að byrja með en 1.10.2008 byrjar að draga á milli.    

Ef verð á bensíni væri í sama leveli og crude oil, þá væri lítraverð um 90 kr svo myndi bætast við aukaskatturinn frá fyrverandi ríkisstjórn. þannig að raunverð í dag ætti að vera rett um 100kr.

 

Línurit



Útreikningur

ok WE ARE FUCKED

Ef gengið lagast ekki fyrr en í fyrstalagi næsta haust þá munu ALLIR þeir sem eru með lánin á frystingu núna (þau voru fryst til 3 mán held ég) fara á hausinn .... líklega Nokkrir tugir þúsunda manns, svo bætast þeir við sem eru og verða atvinnulausir á þessu ári..hmmm tugir þúsunda..... 

Þannig að þeir sem lifa þessa kreppu af eru þeir sem komu okkur í hana og hafa stungið undan miljörðum.. en við almúgin sem vorum ekki í neinu braski og unnum okkar dagvinnu, erum eins og rollur á leið til slátrunar, eina leiðin fyrir okkur er að koma sér af þessu skeri og byrja uppá nýtt fjarri sjálftökuliði og klíkum. (t.d. núna er ekki decode að fá 1,5 miljarð að láni, fyrirtæki sem aldrei mun geta borið sig. við höfum ekki efni á að henda 1,5 miljarði í eitthvað gæluverkefni Kára )

Kannski ríkisstjórnin gæti komið fyrir kassa á flugstöðinni þar sem maður getur hent lyklinum af húsinu og bílnum í leiðinni þegar maður fer. 

Með þessa ríkisstjórn  sem hefur hummað allt fram af sér allt síðasta ár (og hefði hæglega getað afstýrt þessari kreppu) og Dabba seðlabankastjóra sem afnam öll höft á banka og það fjárglæfralið, þá eru dagar okkar taldir.  Það er ljóst af "we are Fucked"

Annars af hverju er ekki hægt að festa gengið andvirkt s.s.styrkja gengið. (hér í gamladaga var gegnið alltaf fellt) s.s. styrkja gengið handvirkt og festa við norsku krónuna. frysta verðtryggingu og lækka vexti.....

Þá er kreppan horfin,
því þessi kreppa er algerlega heimatilbúin með okurvöxtum og verðtryggingu og fjárglæframenn sem hafa spilað með krónuna þannig að hún er ónýt. 

 


mbl.is Spá aukinni verðbólgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankinn var verðlaus vegna þess að traustið vantaði

Sama með ísland. Ísland og íslenska krónan er verðlaus því allt traust umheimsins vantar. Það hlæja allir að seðlabankastjóra og ríkisstjórn Íslands og þó að það væru 60% vextir þá myndi engum heilvita bisnesmanni detta í hug að leggja pening í bréf á Íslandi því..... allt traust vantar.

Það sést glögglega í þessu dæmi að um leið og aðrir eigendur eru komnir með bankann og hann er ekki lengur  tengdur fjárglæframönnum og ríkisstjórn sem er handbendi þeirra þá snarhækkar hann í verði.

 


mbl.is Glitnir ASA seldur á brot af raunvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greinilegt að Dabbi missti af þessu námskeiði

S.s. lækkun vaxta er gerð til að stuðla að því að vinna á móti samdrætti í efnahagslífi.

Hérna hækka þeir frekar vextina til þess að peningaliði fái nú almennilegan pening fyrir að gera ekki neitt. Skítt með þá sem skulda, eða eins og þessir snillingar segja  "fólk hefði bara átt að sleppa því að skulda pening, þetta er bara því sjálfu að kenna".

Húrra Dabbi og ríkisstjórn Íslands. Þið eruð snillingar. 

Ísland er í drepast og þið gerið EKKERT til að rétta af rekstur fyrirtækja og almennings.

LÆKKIÐ VEXTI STRAX og frystið verðbætur, styrkið gengið handvirkt og festið við norsku krónuna.

þegar það er komið þá geta fyrirtæki starfað, fólk heldur vinnuni og þá gefst ykkur friður til að leysa þau mál sem þarf að leysa. 


mbl.is Stýrivextir lækka í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Dóri J

Höfundur

Halldór Jónasson
Halldór Jónasson
Þetta er mín skoðun. Þú hefur líklega aðra skoðun og ég virði það.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Útreikningur
  • Útreikningur
  • Útreikn
  • Línurit
  • linurit 783390.gif

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband